Á morgun tekur Héraðsdómur Vesturlands fyrir mál sem tengist Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarssonar eða ÞÞÞ á Akranesi. Matsbeiðandi er landskunnur knattspyrnuþjálfari og bróðir Þórðar Þ.
Fyrirtækið var stofnað 23. ágúst árið 1927 af Þórði Þ. Þórðarsyni og Sigríði Guðmundsdóttur á Hvítanesi við Kirkjubraut 16 á Akranesi. Bifreiðastöð ÞÞÞ hefur alla tíð síðan verði í eigu sömu fjölskyldunnar. Afkomendur þeirra Þórðar og Sigríðar reka fyrirtækið í dag og framkvæmdastjóri er afabarn þeirra, Þórður Þ. Þórðarson.
Matsbeiðandinn er Ólafur Þórðarson en hann á 33,33% í fyrirtækinu en matsaðilinn, Þórður Þ. Þórðarson, bróðir Ólafar, á 66,66%. Telja sumir að Ólafur ætli sér að kanna verðmæti fyrirtækisins, jafnvel með það í huga að selja sín 33,33%. Dómarinn í málinu er Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari, en það verður tekið fyrir klukkan 14:00 á morgun.