Margir verða vafalaust svekktir að frétt að Gísli Marteinn verður ekki á skjá landsmanna í kvöld. Vikan með honum er í fríi í kvöld en í stað þess verður sýndur söfnunarþáttur fyrir Rauða krossinn.
Gísli greinir frá þessu á Twitter og segir: „Rétt að minna á að #vikan er ekki á dagskrá í kvöld. Það er söfnunarþáttur fyrir Rauða krossinn á rúv í kvöld. Mikilvægt málefni. Við verðum aftur með ykkur á föstudaginn eftir viku.“
Þar tekur fólk þessum fréttum misvel, en einn er þó miður sín og skrifar: „Helgin ónýt! :'(“
Rétt að minna á að #vikan er ekki á dagskrá í kvöld. Það er söfnunarþáttur fyrir Rauða krossinn á rúv í kvöld. Mikilvægt málefni. Við verðum aftur með ykkur á föstudaginn eftir viku.
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) October 7, 2022