Jón Gnarr telur nauðsynlegt fyrir Samfylkinguna að breyta og uppfæra nafn sitt, til þess að gefa nýrri og ungri forystu tækifæri.
Í nýrri færslu á Twitter skrifar Jón Gnarr færslu þar sem hann baunar á Sighvat Björgvinsson sem nýverið skrifaði grein þar sem hann varði Jón Baldvin Hannibalsson og skaut fast á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í leiðinni. Jón Gnarr segir það hreinlega lífsnauðsynlegt Samfylkingunni að breyta um nafn, meðal annars til að losna við menn eins og Sighvat.
„það er algjörlega lífsnauðsynlegt fyrir Samfylkinguna að breyta og uppfæra nafn sitt, þó ekki væri nema til þess að losa sig undan krumlum þessara agalegu karla og gefa nýrri og ungri forystu tækifæri til að endurnýja og endurvekja jafnaðarhugsjónina,“ skrifaði Jón og birti mynd af Sighvati Björgvinssyni.