Óskað var eftir aðstoð lögreglu í gærkvöldi í mathöll í hverfi 105. Þar hafði maður ráfað inn og svaf ölvunarsvefni. Lögregla vakti viðkomandi og hélt hann sína leið. Í Grafarvogi datt einstaklingur af hjólinu sínu og var hann illa áttaður þegar lögregla kom á vettvang. Sjúkrabíll sótti manninn og flutti hann á bráðadeild til aðhlynningar.
Síðar um kvöldið þurfti lögregla að hafa afskipti af öðrum ölvuðum manni í Breiðholti. Sá svaf ölvunarsvefni í anddyri í fjölbýlishúsi. Í sama hverfi, skömmu síðar, komst þjófur undan með muni úr sameign. Lögregla rannsakar málið. Reiðhjól og vespa skullu saman í Kópavogi. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort fólk hafi slasast við umferðaróhappið. Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.