Eva Hrund Pétursdóttir verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. október næstkomandi. Þetta kemur fram í útfarartilkynningu í Morgunblaðinu í dag. Eva lést í skotárás á heimili sínu í lok sumars á Blönduósi.
Eiginmaður hennar, Kári Kárason, lifði árásina af en hann ásamt fjórum börnum þeirra birtir tilkynninguna um útför Evu. Árásarmaðurinn lést á vettvangi en sonur þeirra var í húsinu og varðist.
Þeim sem vilja minnast Evu er bent á styrktarreikning fjölskyldu hennar reikningsnúmer 0307-26-4701, kennitala 470169-1689.