- Auglýsing -
Mikil viðbúnaður var eldsnemma í morgun á Akranesi en þar handtók sérsveitin tvo manns að sögn bæjarbúa. Myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan en þar sést meðal annars fjöldi sérsveitamanna á harða hlaupum sem og handtaka manns á umferðareyju.
Að sögn bæjarbúa þá reyndu mennirnir tveir að ræna Kallabakarí snemma í morgun. Þeir eru sagðir hafa verið vopnaðir eggvopnum og virtust ekki með öllu mjalla. Eftir því sem Mannlíf kemst næst þá hefur lögregla hvergi greint frá atvikinu.