Á morgun verða svokallaðir heilunartónleikar haldnir í Fríkirkjunni.
Það er tónlistarkonan og jógakennarinn Hugrún Fjóla Hafsteinsdóttir sem stendur að tónleikunum í tilefni þess að hún mun gefa út sína fyrstu breiðskífu 10. desember. Breiðskífan hefur að geyma tónlist við Kundalini jógamöntrur.
Hugrún Fjóla segir að á tónleikunum ætli hún og annað tónlistarfólk að kalla á ljósið. „Við ætlum okkur að kalla á, og raunbirta ljósið þar sem skammdegið sígur nú hratt á, og við færum ljósið inn í huga okkar og hjörtu,“ segir hún.
Frítt er inn á tónleikana og hefjast þeir klukkan 20.00. Dyrnar opna 19:30. Hægt verður að kaupa sér kakóbolla frá Guatimala fyrir tónleika.