Túristi var til vandræða í miðborginni eldsnemma í morgun, þar sem hann var að reyna að komast á hótelherbergi en gallinn var sá að hann var ekki gestur á því hóteli. Nokkra stund tók að vísa honum á brott en á endanum náðist það þó. Ekki var þessi hressi túristi þó hættur því tvisvar í viðbót þurfti lögreglan að hafa afskipti af honum en að endingu fór hann sýna leið.
Tilkynning barst um framkvæmdir sem hófust á milli 8 og 9 en þeim fylgdi mikill hávaði. Slíkur framkvæmdarhávaði er hins vegar ekki leyfður fyrr en klukkan 10:00. Stöðvaði verkstjórinn vinnuna og ætlaði að bíða til 10:00.
Þá var hringt í lögregluna vegna aðila sem veittist að fólki í húsnæði Rauða krossins í Hafnarfirði. Hafði hann meðal annars lamið til fólks með stól. Var hann farinn af vettvangi er lögreglan bar að garði og er málið í rannsókn.