Sambandsslit Vítalíu Lazarevu og Arnars Grant hafa vakið mikla athygli. Fyrst bárust fréttir af því að þau væru að flytja inn saman, og að allt væri í lukkunnar velstandi.
Svo er ekki.
Vítalía tjáði sig í dag um Arnar Grant – sagðist ekki geta verið nálægt honum; skrifaði færslu á Intagram þar sem hún sagði:
„Taka pokana og hypja sig út. Lygarnar halda áfram.“
Svo birti hún myndband þar sem greinilegt er að hlutirnir eru ekki að ganga upp hjá fyrrverandi parinu; líklega þekktasta og dýrasta ást Íslandssögunnar er komin á endastöð.
Vítalía segir meðal annars í myndbandinu:
„Þessi maður lét mig missa fjölskylduna. Hann er sturlaður! „Þetta er maðurinn sem lýgur öllu. Segir að ég sé stalker, þegar hann lét mig missa fjölskylduna mína; lýgur að fyrrverandi eiginkonu sinni enn þann dag í dag. Hann segir að ég sé að stalka sig og að hann væri að nota mig fyrir lögregluskýrsluna. Svo ætlaði hann að losa sig við mig eftir það. Hann laug í lögregluskýrslunni, hann laug upp á lögfræðing. Hann er sturlaður. Þetta er ekki búið.“