Kammerkórinn Schola cantorum heldur árlega jólatónleika sína í Hallgrímskirkju föstudaginn 20. desember kl. 12.
Á vetrarsólstöðum flytur Schola cantorum hugljúfa jólatónlist úr ýmsum áttum. Nýleg íslensk jólalög í bland við önnur vel þekkt, bæði íslensk og erlend munu hljóma og má þar nefna Betlehemsstjörnuna eftir Áskel Jónsson, Stráið salinn í útsetningu John Rutter, Hátíð fer að höndum ein í útsetningu Auðar Guðjohnsen og Ó, helga nótt eftir Adams.
Fleiri falleg jólalög eftir Gunnar Andreas Kristinsson, Daníel Bjarnason, Hreiðar Inga Þorsteinsson og fleiri verða einnig á efnisskránni.
Upplagt tækifæri til að koma við í Hallgrímskirkju í hádeginu, auðga jólaandann og fagna bjartari tíð.
Einsöngvarar eru: Hildigunnur Einarsdóttir alt, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran.
Orgelleikari: Björn Steinar Sólbergsson. Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Tónleikarnir eru hluti af Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju.
Eftir tónleikana er tónleikagestum boðið upp á heitt súkkulaði í suðursal kirkjunnar.
Miðasala fer fram á www.tix.is og í anddyri kirkjunnar klukkutíma fyrir tónleika. Að auki er hægt að kaupa miða í búð kirkjunnar sem er opin frá kl. 09:00-17:00 alla daga vikunnar.