Nýjasta kvikmynd Ragnars Bragasonar, Gullregn, verður frumsýnd 10. janúar. Myndin er byggð á samnefndu leikriti Ragnars sem var sýnt á fjölum Borgarleikhússins árið 2012.
Myndin segir frá kerfisfræðingnum Indíönu Jónsdóttur sem býr einangruð í lítilli blokkaríbúð umkringd innflytjendum sem hún fyrirlítur. Í litlum garðskika við íbúðina stendur gullregn, verðlaunað tré sem er stolt hennar og yndi.
Þegar einkasonurinn kemur heim með kærustu af erlendum uppruna snýst heimur Indíönu á hvolf.
Sigrún Edda Björnsdóttir fer með eitt aðalhlutverkið. Hallgrímur Ólafsson og Halldóra Geirharðsdóttir eru meðal þeirra sem fara með önnur hlutverk í myndinni. Ragnar skrifar handritið og leikstýrir.
Stiklu úr myndinni má sjá hér fyrir neðan.