Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir á Facebook að Sjálfstæðismenn séu að skjóta sjálfan sig í fótinn með því að leggja fram frumvarp, sem að svo virðist hafi þann eina tilgang að grafa undan stéttarfélögum á Íslandi. Vilhjálmur segir að með þessu sé flokkurinn að hrekkja í burtu alla stuðningsmenn flokksins sem eru jafnframt launafólk.
Pistill Vilhjálms í heild sinni:
Hann Vilhjálmur nafni minn Árnason verður að fyrirgefa mér það, en hvorki mér né alþýðu þessa lands dettur til hugar að halda að þetta frumvarp Sjálfstæðisflokksins um frjálsa félagsaðild sé lagt fram vegna „góðmennsku“ flokksins í garð stéttarfélaganna.
Nei þetta frumvarp er bein árás á stéttarfélögin og mun stórskaða hagsmuni launafólks og mitt mat er að flokkurinn er fullmeðvitaður um að þetta frumvarp myndi veikja stöðu stéttarfélaganna ef það yrði að lögum.
Það er bláköld staðreynd í mínum huga að þetta mun valda flokknum tjóni, enda eru þúsundir launamanna sem þurfa á hjálp og þjónustu stéttarfélaganna á degi hverjum og þeir sjá í gegnum þessa aðför sjálfstæðismanna að stéttarfélögunum.
Það er hins vegar rannsóknarefni að sjálfstæðismenn skuli eyða tíma í leggja þetta frumvarp fram á sama tíma og lífskjarakrísa herjar á neytendur, launafólk og heimili. Lífskjarakrísa sem er vegna hækkunar á leigu, vöxtum, matvöru og nánast á öllum kostnaðarliðum sem heimilin þurfa að standa straum af í hverjum mánuði!