- Auglýsing -
Steinunn Árnadóttir, hestakona og organisti er dugleg að vekja athygli á dýraníð í Borgarnesi en það gerir hún á Facebook-veggi sínum. Síðsumars birti hún ljósmyndir af horuðum og illa förnum hestum sem ekki höfðu fengið að fara út í heilt ár. Vakti málið gríðarlega athygli í fjölmiðlum. Nú snýr Steinunn sér að nautgripunum.
Steinunn skrifaði eftirfarandi færslu á Facebook og birti ljósmyndir sem hún tók af illa förnum nautgripum frá sama bæ og hrossin voru á en 13 þeirra voru felld því ekki var hægt að bjarga þeim.
„Hjálp !
Getur einhver hjálpað okkur?
Okkur er kalt og við erum svöng. Við þorum ekki að fara í skurðinn að ná okkur í vatn. Vinkona okkar festist þar og húsbóndi okkar varð mjög reiður. Hann og kona hans lömdu hana mjög lengi.
Við heyrðum að verið væri að reyna bjarga hestum sem húsbóndi okkar og kona hans eiga. Er möguleiki að við fáum að vera með? Við lofum að vera mjög góð.