Þau tíðindi hafa borist að frá og með næsta mánuði ætlar raftækjaverslunin Elko að hefja sölu á raftækjum sem flokkast undir unaðsvörur; kynlífstæki fyrir fullorðna.
Kom þetta fram á fjárfestakynningu Festar, móðurfélags Elko.
Á kynningunni kom fram að sala unaðsvaranna myndi byrja í tengslum við dag einhleypra; að viðskiptavinir hafi kallað eftir þessum vörum.
Segir einnig að mikil tækifæri séu í sölu á þessum markaði sem hafi þróast mikið, eflst og breyst.
Mikil velta hefur verið á þessum markaði undanfarin ár; vex með hverju árinu og margir um hituna. Forvitnilegt verður að fylgjast með þróun markaðarins á næstunni.