Faðir knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar, Sigurður Aðalsteinsson, segir í samtali við Fréttablaðið að mannréttindi sonar hans séu brotin með farbanninu í Bretlandi.
Gylfi Þór hefur nú verið í farbanni í Bretlandi í 468 daga, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Hvert hið meinta brot hans er, hefur hvergi komið fram.
Það var 17. júlí árið 2021 sem Gylfi var handtekinn á heimili sínu en honum var svo sleppt gegn tryggingu. Síðan þá hefur hann sætt farbanni. Faðir hans hefur reynt að fá að flytja lögheimili hans til Íslands en án árangurs.
„Ef þú eða einhver annar hefði verið kyrrsettur, í Svíþjóð sem dæmi. Ef þú átt fjölskyldu, börn og svo framvegis, húseignir og skuldir. Ef þú værir kyrrsettur þar, gætir ekki unnið, gætir ekki framfleytt fjölskyldunni í eitt og hálft ár. Hvernig heldurðu að staðan væri hjá þér þá?,“ sagði Sigurður við Fréttablaðið.
Sigurður segir að Gylfi hafi fjárhagslega burði en það eigi ekki við um alla:
„Fjárhagslega getur hann (Gylfi Þór) klofið þetta en það eru ekki allir í sömu stöðu. Meðalmaðurinn getur ekki verið kyrrsettur í öðru landi, verið þar og bara beðið og beðið endalaust eftir því sem lögreglunni þóknast að ákveða hvort menn hafi gert eitthvað misjafnt. Eina sem ég er að segja er að ef einhver maður er kyrrsettur í einhverju landi fyrir eitthvað áætlað brot, þá geturðu ekki látið hann dúsa þar í eitt ár, eitt og hálft ár og beðið bara endalaust. Á hann bara að vera á hóteli á meðan eða íbúð? Hvað á hann að gera?“
Sigurður er þess handviss um að brotið sé á mannrétindum Gylfa.
„Almennt séð getur það ekki gengið í réttarríki að menn séu látnir dúsa í eitt og hálft ár erlendis án dóms og laga,“ segir Sigurður við Fréttablaðið. „Enda stendur það í Mannréttindasáttmálanum að menn skulu fá réttláta meðferð frá óháðum aðila, fljótt. Ég get ekki séð að þetta sé fljótt. Þá er þetta klárt brot.“
Viðtalið við Sigurð má lesa í heild hérna.