Hinni árlegu afhendingarhátíð BAFTA-sjónvarpsverðlaunanna, verðlaunum bresku kvikmyndaakademíunnar fyrir sjónvarpsefni, sem átti að fara fram 17. maí, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna kórónuveirufaraldursins.
Skipuleggjendur hátíðarinnar sendu frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að verðlaunahátíðinni hafi verið frestað þangað til síðar á árinu, en ekki sé búið að ákveða dagetningu. Í tilkynningunni kemur fram að vel sé fylgst með framvindu mála og í einu og öllu farið eftir ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda og stjórnvalda.
„… öryggi meðlima okkar, gesta og starfsfólks verður áfram í forgangi,“ segir í niðurlagi tilkynningarinnar.
Tilnefningar til verðlaunanna áttu að birtast 26. apríl en ekki verður ráðið af margnefndri tilkynningu hvort þeim seinki líka, þótt það verði að teljast líklegt.