Ísold Uggadóttir og Halldóra Geirharðsdóttir hlutu Chlotrudis-verðlaun í vikunni. Verðlaunahátíðin átti að fara fram í þessari viku er hátíðinni var aflýst vegna útbreiðslu COVID-19. Sigurvegarar hafa þó verið kynntir í tilkynningu á vefsíðu Chlotrudis Society for Independent Film.
Í tilkynningu um hátíðina segir að suðurkóreska kvikmyndin Parasite og Íslenskar konur standi uppi sem sigurvegarar.
Íslensku myndirnar Andið eðlilega og Kona fer í stríð fengu samanlagt þrjú verðlaun.
Kvikmyndin Kona fer í stríð hlaut tvö verðlaun, annars vegar fyrir bestu tónlistina og hins vegar í flokki bestu leikkonu en Halldóra Geirharðsdóttir fór með aðalhlutverk myndarinnar.
Tveir hlutu verðlaunin í flokki besta leikstjóra, það eru Ísold Uggadóttir fyrir leikstjórn Andið eðlilega og Bong Joon–ho fyrir leikstjórn Parasite.
Kvikmyndin Parasite hlaut fjögur verðlaun á hátíðinni, meðal annars í flokknum besta myndin.
Þetta er í 26 sinn sem Chlotrudis-verðlaunin eru veitt.