Samkomubannið hefur kennt landsmönnum öllum ýmislegt; þolinmæði, samkennd, nægjusemi og margt fleira. Landsmenn þurfa einnig að læra að vera sjálfum sér nægir og finna upp á einhverju að gera heima við.
Fjölmargir hafa lagt þar hönd á plóg og boðið upp á ýmsa afþreyingu í gegnum samfélagsmiðla, áhorfendum og notendum að kostnaðarlausu, eina sem þarf er nettenging og sími eða tölva.
Mannlíf skoðar nokkra viðburði sem hafa verið í boði og verða áfram í boði næstu daga og vikur.
Hlynur Jakobsson, plötusnúður og veitingahússeigandi, „dj-ar“ á Facebook í beinni heiman frá sér á hverju kvöldi kl. 19.30, í 30-60 mínútur í hvert sinn. Ellý Ármanns, unnusta hans og athafnakona, dansar með og segist hún ætla að dansa sig í gegnum aðstæður í þjóðfélaginu. Oft elda þau á meðan tónlistin dunar, en á fóninum er mikið um tónlist frá níunda áratugnum, sem kætir aðdáendur þess tímabils.
Posted by Hlynur Jakobsson on Fimmtudagur, 23. apríl 2020
Hjálmar Örn Jóhannsson, hvítvínskona með miklu meiru, hefur tvisvar verið bingóstjóri í mannmesta bingói Íslandssögunnar í boði Ali matvara, á Facebook-síðu fyrirtækisins. Þó að bingóið sé í raun risastór auglýsing fyrirtækisins, með vinningum frá því og öðrum fyrirtækjum, þá er viðburðurinn stórskemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna og Hjálmar Örn með skemmtilegri mönnum landsins. Fjölmörg fyrirtæki eru líklega frústreruð yfir að hafa ekki látið sér detta í hug að bjóða upp á slíkan viðburð. Tvö bingó eru að baki og lofar Hjálmar Örn að halda minnst eitt í viðbót.
Ævar Þór Benediktsson rithöfundur, eða Ævar vísindamaður, er með upplestur í beinni alla virka daga klukkan 13 á Facebook-síðu sinni. Ævar les upp úr eigin bókum og er nú á þeirri þriðju, en hver upplestur stendur í um tíu mínútur.
Upplestur á Risaeðlum í Reykjavík 🦖 – Áttundi og síðasti hluti
Upplestur á Risaeðlum í Reykjavík 🦖 – Áttundi og síðasti hluti
Posted by Ævar vísindamaður on Miðvikudagur, 25. mars 2020
Linda Rós Haukdal Rúnarsdóttir hársnyrtimeistari gefur góð ráð hvað hárumhirðu, greiðslu og fleira varðar á Instagram: lindaklippari. Greiðsla, krullutækni, spennutækni, fléttugreiðsla og margt fleira virkar ofureinfalt í höndunum á Lindu Rós.
Friðrik Agni Árnason les eigin ljóð í beinni á Facebook-síðu sinni öll kvöld kl. 22. Ljóðin les hann til skiptis á íslensku og ensku.
Poetry in Quarantine. I read my poems in either English or Icelandic every night. Tonight´s reading is in Icelandic.
Posted by Friðrik Agni on Fimmtudagur, 23. apríl 2020