Rithöfundurinn og bóndinn Óskar Magnússon á ekki upp á pallborðið hjá Agnesi Sigurðardóttur. Óskar stóð uppi í hárinu á hinum umdeilda biskupi á Kirkjuþingi og sagði hana hafa neitað að flytja, og þannig staðið í vegi fyrir nauðsynlegum sparnaði þegar framkvæmdanefnd þjóðkirkjunnar hafði fundið ákjósanlegt húsnæði í Borgartún. „Það er engin stofnun sem starfar svona,“ sagði Óskar.
Biskupinn brást ókvæða við sakaði Óskar um að halda á lofti kjaftasögum, baktali og röngum upplýsingum. Agnes þykir ekki vera klók þar sem kemur að rekstri og Óskar, sem er fulltrúi Suðurprófastsdæmis á Kirkjuþingi, lét hana finna til tevatnsins og sagði „djúpstæðan klofning“ vera ríkjandi innan Þjóðkirkjunnar ….