Laust fyrir klukkan fjögur í nótt er lögreglumenn voru við störf í miðbænum urðu þeir vitni að líkamsárás. Heppileg tilviljun sú að vera jafnréttur (lögreglu)maður á réttri stund. Var einn slagsmálahundur handtekinn og fékk sá hinn sami að dúsa í steininum.
Tilkynning barst tvær mínútur yfir fjögur í nótt um yfirstandandi innbrot í miðbænum. Snör í snúningum gómaði lögreglan þrjá meinta innbrotsþjófa og þeir handteknir á vettvangi. Málið í skoðun hjá lögreglu.
Talsvert var um ölvunar- og fíkniefnaakstur, það mikið að tveir voru stöðvaðir á sömu mínútunni í sitthvoru hverfinu. Báðum var sleppt eftir sýnatöku, ekki er vitað hvort þeir hafi verið jafnsamtaka út af lögreglustöðvunum.
Annars var nóttin erilsöm samkvæmt því er kemur fram í dagbók lögreglunar – en í gær var lokanótt tónlistarhátíðarinnar Airwaves.