- Auglýsing -
Næsta föstudag verður fyrsta kvöldið í syrpu af Hipp-Hopp Jam Sessions undir stjórn DJ Bricks/Bróður BIG.
Þetta verða óformlegir tónleikar þar sem a.m.k. 3 atriði koma fram á hverju kvöldi og „jamma“ saman. Einnig verður alltaf open mic svo hver sem vill getur tekið þátt og hvetjum við alla rappara, söngvara, hljóðfæraleikara og annað tónlistarfólk sem hefur áhuga á Hipp-Hoppi að vera með.
Á þessu fyrsta kvöldi 5. apríl á Boston verða atriðin þrjú:
Kilo
M.V. Elyahsyn (úr Regn)
Sdóri & Helgi A (úr Landabois)
Við byrjum kl 22:00 og það er frítt inn að sjálfsögðu!