Brotist var inn í bifreið við verslun í gærkvöldi og var lögreglu gert vart við. Þjófurinn komst yfir greiðslukort eiganda bílsins og notaði það í annarri verslun skammt frá. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort þjófurinn náðist. Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning um par sem braust inn í bifreiðar í Grafarholti. Annar aðilinn reyndi að komast undan á hlaupum en var hlaupinn uppi af lögreglu. Hinn þjófurinn hafði reynt að fela sig í garði í næsta nágrenni. Parið var með ætlað þýfi í fórum sínum og eyddi nóttinni í fangaklefa.
Ökumaður tilkynnti lögreglu um rásandi bifreið sem ók ítrekað utan í umferðarkant. Skömmu síðar hafði lögregla upp á bifreiðinni og kom í ljós að ökumaðurinn var drukkinn. Þá hafði lögregla afskipti af tveimur öðrum ökumönnum sem báðir eru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna.