Þjófur braust inn á lager herbergi á veitingastað í miðbænum í gærkvöldi og stal áfengi og bakpoka með „ DJ – græjum“. Þegar lögregla skoðað upptökur í öryggiskerfi staðarins kom í ljós að maðurinn var kunnulegur og var hann handtekinn síðar um nóttina. Maðurinn viðurkenndi brotin en var í annarlegu ástandi og því látinn gista í fangaklefa lögreglu. Síðar um kvöldið hafði lögregla afskipti af mann sem neitaði að fara af akbraut í miðbænum. Maðurinn var ofurölvi og vildi hvorki segja lögreglu nafn sitt né kennitölu. Því var lítið annað í stöðunni en að handtaka manninn færa á lögreglustöð þar sem hann var kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Í hverfi 108 barst lögreglu tilkynning um strætisvagn í ljósum logum. Þegar lögregla kom á vettvang hafði tekist að slökkva eldinn en hafði vitni sótt slökkvitæki á veitingastað nærri vettvangi og slökkt eldinn. Bílstjórinn var í miklu áfalli og hafði andað að sér reyk en grunur er um að íkveikju hafi verið að ræða. Þá var fíkniefnasali handtekinn í Kópavogi. Maðurinn afhenti lögreglu bæði fíkniefnin og fjármuni sem hann sagði vera ágóða af sölunni.