Indverskir fjölmiðlar hafa nú greint frá því að utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, hafi verið fluttur með hraði á sjúkrahús.
Var utanríkisráðherrann þá nýkominn til Bali; þar sem hann sat fund tuttugu helstu iðnríkja heims.
Rússnesk yfirvöld hafa ekki staðfest fréttina, en óstaðfestar fréttir herma að Lavrov hafi kvartað undan miklum verkjum við hjartað.
Lavrov fer fyrir sendinefnd Rússa á Bali; hann er sjötíu og tveggja ára gamall.
Óhætt er að segja að Lavrov hafi staðið í ströngu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar – og ljóst að pressan sem fylgir starfinu fyrir mann á áttræðisaldri er mikil.