Íslandsbankabrallið verður væntanlega dýrkeyptara fyrir Vinstri-græna en fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem þó ber höfuðábyrgð á sukkinu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er ekki lengur í efsta sætinu þar sem litið er til þeirra sem þjóðin treystir best. Þetta er mikil breyting frá því sem hefur verið um langa hríð. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, er í efsta sætinu samkvæmt könnun sem Fréttablaðið birtir í dag. Um fjórðungur þjóðarinnar treystir Kristrúnu en Katrín nýtur einungis stuðnings 17,5 prósenta. Þetta er hrun ef miðað er við að tæp 58 prósent treystu Katrínu best allra í fyrri könnun. Það kemur svo ekki á óvart að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra nýtur stuðnings 15,4 prósenta kjósenda. Það þýðir að stór hluti hans eigin flokksmanna treystir honum ekki á meðan Kristrún nýtur stuðnings langt út fyrir kjörfylgi Samfylkingar.
Óróleiki hefur verið innan raða Vinstri grænna vegna dekurs forystu flokksins við hægri öflin og Bjarna. Vinstri grænir hafa stutt Bjarna í Íslandsbankamálinu á meðan Kristrún hefur miskunnarlaust lúskrað á fjármálaráðherranum. Víst er að ástandið skánar ekki þegar vísbendingar liggja fyrir um fylgishrun Katrínar og allt getur gerst innan flokksins …