Ungur maður var á dögunum sakfelldur í fimm af fimm ákæruliðum í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárásir, fíkniefnalagabrot og brot gegn valdstjórninni.
Pilturinn hlaut tíu mánaða dóm, skilorðsbundin til tveggja ára, en þegar hann var ákærður fyrir brotin í vor var hann átján ára gamall.
Þá var pilturinn ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni sem átti sér stað við Austurstræti í Reykjavík árið 2021. Hann sparkaði í lögreglubíl og virðist í kjölfarið hafa verið handtekinn og settur í bílinn.
Í lögreglubílnum, sem var á leiðinni á lögreglustöðina við Hverfisgötu, hafi hann hrækt á ermi lögregluþjóns og haft í hótunum við hann og annan lögregluþjón með orðunum:
„Oh. þú ert svo sæt í andlitinu ég mun fokking nauðga andlitinu þínu“ og „Ógeðslega fokking mellan þín ég mun fokking nauðga þér í fokking rassgatið“ og „Haltu fokking kjafti eða ég mun fokking ríða þér í fokking rassgatið“
Pilturinn játaði sök í því máli og þótti ekki tilefni til að draga játninguna í efa.
Hann var til að mynda dæmdur fyrir að ráðast að jafnaldra sínum í Mosfellsbæ árið 2020, þegar hann var einungis sextán ára.
Það gerði hann með ítrekuðum hnefahöggum í höfuð svo hinn féll við, og síðan með því að halda atlögu sinni áfram, stappað á höfði hans og hálsi og slegið hann ítrekuðum hnefahöggum í andlit þar sem hann lá.
Einnig hlaut hann dóm fyrir að kasta glerflösku í öryggisvörð við Hagkaup í Spönginni. Það gerðist eftir að piltinum var vísað úr versluninni því hann bar ekki grímu. Atvikið átti sér stað þegar grímuskylda var við lýði.