Tónlistarkonungur Íslands, Bubbi Morthens, er maður með skoðanir, og alveg óhræddur að segja hvað honum býr í brjósti.
Bubbi er líka þannig maður að hann áauðvelt með að skipta um skoðun – sem er klárlega gott mál; mættu fleiri gera það.
Bubbi hefur enda ekki staðnað í gegnum árin; hann fer alltaf fulla ferð fram og nennir ekki að pæla í fortíðinni of mikið.
Ljóst er að Bubbi er ekki hrifinn af næstu HM í knattspyrnu sem fram fer í Katar – landi sem er umdeilt vegna mannréttindabrota af ýmsu tagi.
Bubbi segir einfaldlega á samfélagsmiðli:
„RÚV á ekki að sýna frá HM í Katar.“