Hin 41 árs Kim Kardashian deildi tilvitnun á Instagram í gær, aðeins nokkrum dögum eftir að sögusagnir um að fyrrverandi kærasti hennar, Pete Davidson, væri kominn í annað samband. „Ég hef áttað mig á því að allt leysist á endanum. Stundum betur en þú getur hugsað þér. Mundu það þegar þú ert á erfiðum stað eða þegar það reynir mest á þig. Sjáðu stærri myndina,“ skrifaði Kim.
Í ágúst var sagt frá sambandsslitum þeirra Kim og Pete en þau voru á allra vörum í þá níu mánuði sem sambandið entist. Samkvæmt heimildum E! News hætti parið saman vegna tímaleysis en þau sáu ekki fyrir sér að geta haldið sambandi gangandi á meðan þau héldu uppi tímafrekum ferlum sínum. Pete sást nýlega með fyrirsætunni Emily Ratajkowski en heimildir segja að þau séu byrjuð að stinga saman nefjum.