- Auglýsing -
Fiskikóngurinn. Kristján Berg Ásgeirsson, átti í nokkrum útistöðum við flatbökugerðina Dominos eftir að hann auglýsti í útvarpi „megaviku“ í fisksölu. Hann sagði frá því í blaðaviðtali að lögfræðingar keðjunnar birtust í fiskbúðinni og Kristján þorði ekki annað en að hlýða og setti píphljóð yfir megavika. Hann hugsaði þó sitt ráð og leitaði hefnda. Tækifærið kom svo þegar húsnæðið sem hafði að geyma aðalsölustað Dominos á Höfðabakka var auglýst til sölu. Fiskikóngurinn keypti og sagði flatbökurisanum tafarlaust upp leigunni. Hefndin var fullkomnuð …