Í umræðunni undir þræðinum skiptast Akurnesingar í tvo hópa. Annars vegar þá sem vilja ólyktina burt og hina sem telja að vernda þurfi alla atvinnustarfsemi í bænum. Gunna er ein úr fyrrnefnda hópnum. „Viðbjóður!,“ segir hún. „Ein af ástæðum þess að ég fer ekki í sjósund á Akranesi,“ segir Guðbjörg nokkur.
Pétur vill hins vegar loka á þessa umræðu. „Hipp hipp ….. burt með alla atvinnu starfsemi frá Akranesi skulum bara lifa í kyrrð og ró og lyktarlausu umhverfi ,endalaust anskotans væl um allaskapaða hluti er illa þolandi og óskiljanlegt að sumt fólk skuli yfir höfuð vilja búa í þessum góða bæ ,, endalaust tuð og tafs um allt og ekkert, væri alveg umhugsunarvert að koma sér bar eitthvet annað til að geta notið lífsins ef allt er svona assgoti illaþefjandi og ómögulegt hér á Akranesi!!,“ segir Pétur ákveðinn.