Í Mjóddinni í Reykjavík í dag var rampur númer 300 í verkefninu Römpum upp Ísland vígður.
Var það Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sem vígði rampinn.
Téð verkefni snýst um setja upp eitt þúsund rampa um allt Ísland á fjórum árum, en það gengur vel; samkvæmt áætlun í það minnsta.
Þegar áðurnefndur rampur númer 300 var vígður, greip Guðni forseti til spreybrúsa og boðaði að verkefnið yrði stækkað; þannig yrðu gerðir 1.500 rampar um allt land.
Haraldur Þorleifsson er forsprakki verkefnisins, en hann var að halda ræðu þegar Guðni spurði hvort eitt þúsund rampar væru nóg:
„Væri ekki ráð að gera meira?“
Í kjölfarið fór forsetinn upp á svið með spreybrúsa sem vakti upp ánægju og kátínu, enda Guðni óvenjulegur og afar alþýðlegur forseti.