Ekki hafa komið fram nýjar vísbendingar til lögreglu í leit hennar að Friðfinni Frey Kristinssyni.
Nú eru liðnar tæpar tvær vikur síðan lögreglan lýsti eftir hinum 42 ára gamla Friðfinni.
Samkvæmt upplýsingum er lögreglu nú að yfirfara og skoða þau gögn sem hún hefur undir höndum vegna leitarinnar; það sé töluvert magn og mikil vinna; lögregla vinnur hörðum höndum því að upplýsa hvarf Friðfinns.
Síðast er vitað um ferðir Friðfinns fimmtudagskvöldið 10. nóvember er hann fór frá Kugguvogi.
Friðfinnur var klæddur í gráa peysu, var í gráum joggingbuxum og bláum strigaskóm.
Friðfinnur er 182 sentimetrar á hæð og er grannvaxinn og brúnhærður með alskegg.
Lögregla biður þá sem hafa séð til Friðfinns eða geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.