Ritstýran og baráttukonan Magrét Friðriksdóttir, einnig þekkt sem Magga Frikka, reynir að gera lítið úr sænska loftlagsaðgerðarsinnanum Gretu Thunberg í nýrri færslu á Facebook. Þar deilir hún fréttum af mikilli snjókomu í Skandinavíu og tengir þær við baráttu þeirrar sænsku gegn hamfarahlýnun jarðar. Við færsluna segir Magga:
„Óheppilegt fyrir Grétu Túnbergh!“
Sænski loftlagsaðgerðasinninn Greta var yngsta manneskjan sem valin hefur verið sem manneskja ársins í 96 ára sögu Time tímaritsins. Hún varð heimsfræg á skömmum tíma fyrir eldmóð sinn hvað umhverfismál varðar og gagnrýni sína á aðgerðaleysi stjórnvalda í loftslagsmálum.
Margréti þekkja flestir landsmenn. Hún vakti töluverða athygli þegar Covid faraldurinn stóð sem hæstur en hún talaði gegn samkomutakmörkunum, grímuskyldu og bólusetningum. Hún lenti nokkrum sinnum í vandræðum vegna þessa og var meðal annars vísað úr flugvél.
Nú þegar Skandinavía er á kafi í snjó gerir Magga lítið úr baráttu Gretu. Snjó hefur kyngt niður í Svíþjóð og Danmörku undanfarinn sólarhring. Svo mjög að samgöngur hafa lamast og fólk víða ekki komist leiðar sinnar.
Og Margrét hefur þetta um málið að segja. „Merkilegt í miðri hamfarahlýnun, og glórulausa liðið heimtar meiri peninga og heldur að það geti stjórnað loftslaginu/móður náttúru með meiri peningum, hversu galið,“ segir Margrét.