Það er óhætt að segja að John Sebastian, annar þeirra sem varð fyrir hrottalegri hnífaárás í Bankastræti Club fyrir viku, beri sig vel.
Í það minnsta var hann hvergi banginn þegar hann var í beinni útsendingu á Instagram um níuleytið í morgun. Í kvöld er vika síðan hann var stunginn sjö sinnum, þar af í bakið og í annað lungað.
Á Instagram mátti sjá John Sebastian í laufléttu spjalli við tvær vinkonur sínar. Gleðin var óneitanlega við völd og því oft erfitt að skilja hvað þeim fór milli. Önnur hafði orð á því að John Sebastian hefði mestan áhuga á því að vita hvenær hann gæti farið að borða mat aftur.
Sú sagði: „fyrsta sem hann spyr er hvenær má ég borða“. Þetta vakti mikla lukka og fóru þau öll að hlægja. Þá sagði John Sebastian: „Ég ma ekki hlæja svona mikið“. Stuttu síðar rauf hann útsendingu.