Lögreglu barst tilkynning um sofandi einstakling í verslun í hverfi 108. Maðurinn var vakinn og hélt hann sína leið. Skömmu síðar var lögregla kölluð út í miðbæ Reykjavíkur þar sem einstaklingur hafði í hótunum við starfsmenn verslunar. Sá var handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.
Í Garðabæ var tilkynnt um bílveltu. Talið er að ökumaðurinn hafi verið ölvaður og var hann látinn gista bak við lás og slá í kjölfarið. Síðar um kvöldið tók lögregla skýrslu af karlmanni í Kópavogi. Sá er grunaður um líkamsárás en var látinn laus að skýrslutöku lokinni. Þá sinnti lögregla umferðareftirliti og stöðvaði meðal annars ölvaðan ökumann í Árbænum.