- Auglýsing -
Fiskiskipið Vilhelm Thorsteinssson, skip í eigu útgerðarfyrirtækisins Samherja, er strandaður við höfnina í Neskaupstað. Þar strandaði skipið fyrir rúmum klukkutíma síðan og er björgun í gangi.
Engin hætta er sögð á ferðum og standa vonir til að fiskiskipið Barði nái að draga Vilhelm af strandstað innan tíðar.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að björgunarskipið Hafbjörg sé komið að Vilhelmi. „Staðan er trygg,“ segir Ásgeir í samtali við RÚV.