Adidas hefur nú staðfest með óyggjandi hætti að Ronaldo snerti ekki boltann í marki Portúgals gegn Úrúgvæ á HM í knattspyrnu í gær.
Skiptar skoðanir hafa verið um það hvort Christiano Ronaldo hafi snert boltann er hann reyndi að skalla boltann í mark Úrúgvæa eftir fyrirgjöf Bruno Fernandes. Nú hefur Adidas birt gögn sem sanna að Ronaldo snerti ekki boltann og því sé það Fernandes sem skoraði markið. Gögnin náði Adidas með því að notast við 500Hz IMU sensor and Connected Ball Technology-tæknina sem staðsett er inni í Adidas boltanum sem notaður er á HM í ár.
Athygli vakti að Ronaldo fagnaði markinu líkt og það væri hans en nú er sem sagt annað komið í ljós sem verður að teljast nokkuð vandræðalegt fyrir leikmanninn.
Leikurinn fór 2-0 og var það Bruno Fernandes sem átti bæði mörkin.
Hér fyrir neðan má sjá myndskeið frá Sky Sports um málið:
„Technology inside the ball definitively shows there was no touch“
Adidas’ explanation as to why Cristiano Ronaldo was not awarded Portugal’s first goal against Uruguay 👇 pic.twitter.com/go2JpAn0Uv
— Sky Sports Football (@SkyFootball) November 29, 2022