Sá dáði sjónvarpsmaður, Gísli Marteinn Baldursson, á ekki sjö dagana sæla á samfélagagsmiðlum eftir grátt grín sitt á föstudagskvöldið þar sem illmennið Adolf Hitler og Nasistar hans komu við sögu. Gísli Marteinn grínaðist þar með Jólagestapó á dagskrá Sjónvarpsins. „Fátt betra en gott Nasistaagrín,“ sagði hann í framhaldinu.
Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, reið á vaðið og gagnrýndi efnistök Gísla Marteins í Vikunni. Guðrún Hafsteinsdóttir, verðandi dómsmálaráðherra, tók undir gagnrýnina og lét þáttastjórnandann hafa það óþvegið.
„Ég hef búið í Þýskalandi. Svona myndi engin láta frá sér og allra síst á ríkisreknum fjölmiðli,“ skrifaði hún á Facebook. Þess er nú beðið hvort Gísli Marteinn biðjist afsökunar á gríni sínu. Óljóst er hvort grínistinn skrifaði nasistabullið sjálfur eða fékk það matreitt frá öðrum höfundum þáttarins …