„Vinnubrögð þeirra sem sjást í myndbandinu eru ekki eftir þeim stöðlum sem við viljum halda,“ sagði talsmaður Swissport fyrirtækisins í tilkynningu sem það sendi út eftir að myndband fór á flug á Tiktok. Í því má sjá flugvallarstarfsmenn hreinlega henda töskum á færibandið.
Myndbandið sýnir starfsmenn kasta hverri töskunni á fætur annarri á færibandið án þess að bera nokkra virðingu fyrir því sem gæti verið í töskunum. Þeir voru við störf fyrir Swissport á flugvellinum í Melbourne í Ástralíu og voru sendir í leyfi um nýliðina helgi eftir að myndbandið fór á lfug á samfélagsmiðlum.
„Swissport þjálfar og sér til þess að allt starfsfólk afgreiði farangur viðskiptavina af kostgæfni og varkárni. Vinnubrögð þeirra sem sjást í myndbandinu eru ekki eftir þeim stöðlum sem við viljum halda,“ segir í tilkynningu Swissport.
Myndbandið af meðferð farangursins má sjá hér fyrir neðan.
@rexross79