Basalt Hotel er sakað um að hafa sett fram villandi tilboð sem auglýst var á aha.is. Boðið er uppá gistingu fyrir tvo í fallegu herbergi ásamt morgunmat í aðeins klukkutíma fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Ekki er getið um hvernig herbergi það er. Þegar grannt er skoðað kemur í ljós að fólk getur fengið gistingu með beinum viðskiptum, jafnvel fyrir lægra verð en tilboðið hljóðar upp á.
Fullt verð er samkvæmt tilboðinu 32.000 en með 37 prósenta afslætti kostar gistingin 19.900. Tilboðið gildir frá 4.janúar 2023 til 11. nóvember 2023.
Ef leitað er að gistingu á þessu tímabili á heimasíðu hótelsins til dæmis frá 18 til 19 janúar þá er verðið 18.000 fyrir standard herbergi og 22 þúsund fyrir superior herbergi. Ef tekið er tímabilið frá 13 til 14 júní þá er standard herbergi á 25.920 og superior á 27.540 og frá 16 til 17 september er standard herbergi á 18.000 og superior á 21.870.
Af þessum tölum má sjá að þær passa engan vegin við það tilboð sem er í gangi á aha.is
Mannlíf leitaði skýringa hjá Basalt Hotel og fékk neðangreind svör: