Lögreglu barst tilkynning um tvo drengi sem stálu slökkvitækjum úr bílastæðahúsi í miðnænum. Höfðu þeir spreyjað á öryggismyndavélar svo að þeir næðust ekki á mynd. Síðar um kvöldið var hringt á lögregu úr verslun í miðbænum. Þar hafði maður komið akandi á rafskútu, farið inn í verslun og stolið þar úlpu. Ók hann síðan á brott með úlpuna á rafskútunni. Ekk kemur fram í dagbók lögreglu hvort maðurinn hafi náðst.
Í Hlíðunum þurfti lögregla að hafa afskipti af konu sem var ofurölvi. Vegna annarlegs ástands var konunni ekið til síns heima þar sem sambýlismaður hennar tók á móti henni. Í Hlíðunum datt ungur maður af rafskútu og hlaut áverka á höfði. Er hann grunaður um að hafa ekið rafskútunni undir áhrifum fíkniefna. Þá sinnti lögregla umferðareftirliti og stöðvaði nokkra ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum vímuefna.