Atli Þór Fanndal, fyrrum blaðamaður og núverandi framkvæmdarstjóri Íslandsdeildar Transparency International skýtur bylmingsföstum skotum á ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur í nýrri Facebook færslu.
Atli Þór skrifaði færslu á Facebook við frétt af ummælum Diljá Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins um áhugaleysi flokksins síns við að skapa jöfnuð í landinu. Sagði hún meðal annars: „Við sjálfstæðismenn munum aldrei tala fyrir kerfi eða umhverfi þar sem fyrsta eða æðsta markmið er að jafna kjör fólks.“
Atli Þór segir í færslunni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi alltaf verið í stríði gegn fátæku fólk:
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið í stríði gegn fátæku fólki frekar en fátækt. Það er auðvitað ótrúleg synd að Katrín Jakobsdóttir leggi Bjarna og Sigurði Inga til sértrúðasöfnuðinn VG í þeirri baráttu. Jöfnuður hefur minnkað en ekki aukist í valdatíð Katrínar og það er þrátt fyrir kreppur en ekki vegna. Kreppur má nefnilega nota til umbóta…. Og það gerði ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur svo sannarlega! Bara fyrir ríku vini sína á kostnað almennings.“