Egill Helgason varar við brjálæðislegri hálku á götum bæjarins, en eins og hverjum manni er kunnugt kyngdi niður snjó á höfuðborgarsvæðinu í gær. Egill sem býr í miðbænum skrifar eftirfarandi færslu á fésbókarsíðu sína: „Það er brjálæðislega hált á götum bæjarins. Snjóbræðslukerfið í Miðbænum hefur ekki undan svo það er mannskaðafæri. Verður að gera eitthvað í þessu fljótt. Borgin þarf að gera eitthvað í þessu og eigendur verslana og veitingahúsa líka. Leiðinlegt að brotna i jólatíðinni. Veðrið er hins vegar stillt og fallegt.“
Margir hafa tekið undir orð hans á meðan enn fleiri benda honum vinsamlega á mannbrodda og áætlað verð þeirra. Egill svarar einni mannabrodda-athugasemdinni eftirfarandi: „Ætli væri ekki nær að hreinsa burt klakann ef fólk á að njóta jóla í bænum?“
Eins og fram kom í fréttum hafa snjóruðningstæki og verktakar á vegum borgarinnar haft í nægu að snúast við að hreinsa stofnæðar og margir íbúar á höfuðborgarsvæðinu verið innlyksa í húsum sínum vegna ófærðar. Óljóst er því hvenær borgin kemst í að brjóta ísinn af upphituðum götum miðbæjarins. En íbúar og verslunareigendur hafa verið hvattir til að salta og sanda.