Birgir Þórarinsson, kjörinn þingmaður Miðflokksins og núverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, lagði á sig undarlegt ferðalag til Afganistan í byrhjun mánaðarins til að hitta Talibana að máli. Hann var að sögn fyrstur erlendra stjornmálamanna til að heimsækja þetta ríki öfgamanna sem forsmáir flest mannréttindi og niðurlægir konur sérstaklega.
Milljónir landsmanna hafa flúið landið undan ofsóknum. Birgir komst að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að efla einkaframtakið. Hann maldaði líka í móinn við stjórnvöld vegna framkomu þeirra við þegnana. Á samfelagsmiðlum hafa margir gagnrýnt heimsókn þingmannsin sog sjá ekki tilganginn með því. Sjálfur telur hann heimsóknina nauðsynlega …