„Nýverið spurðist ég kurteisislega um möguleika á dauðum rjúpum og fékk yfir mig skít og skömm og ekki skánaði það þegar ég óskaði eftir hreindýrum til að bjarga jólunum. Hótað lögregluheimsókn,“ segir Glúmur Baldvinsson og bætir við:
„En ég dey ekki ráðalaus og er nú að græja riffilinn og vistir því í nótt held ég til fjalla á veiðar og redda mér sjálfur. Skýt ég allt sem fyrir verður. Best yrði að vega ísbjörn. Það myndi teygja á hátíðinni.“
Hann segist alls ekki á dagskrá að jólin fari framhjá honum:
„Ég mun ekki snúa aftur til byggða tómhentur þótt vikur og mánuðir líði. Takk fyrir hjálpina. Og gleðileg jól.“