Fjölmiðlarefurinn Stefán Jón Hafstein segir að það sé ekki „boðlegt að alvöru fréttaskýringaþáttur eins og Kastljós vill vera hafi tvo blaðafulltrúa í setti til að útskýra þá megakrísu sem varð í Leifsstöð.“
Bætir við:
„Samkvæmt þeim ágætu mönnum fór allt meira og minna vel og það sem gerði það ekki var óviðráðanlegt hverjum mannlegum mætti. Viðtöl við farþega í fjölmörgum fréttatímum þar á undan sögðu allt aðra sögu.“
Heldur áfram:
„Forstjóri Vegagerðarinnar er alltaf tiltæk og snögg til ef þarf að klippa á borða. Isavia er höfuðlaus her eins og vitað er ef á bjátar og auðveldara að fá svör í ratleik Ikea en þar á bæ. Blaðafulltrúar eru ekki tækir við svona aðstæður.
Ps. Og þeir eru ekki heldur tækir í alvöru umræðuþætti og því síður almannatenglar.“