Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur birt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og sýnir hún 0,3 prósenta lækkun á milli október og nóvember. Er þetta í annað sinn sem fasteignaverð lækkar á árinu. Lækkunin skýrist meðal annars á frosti á fasteignamarkaðinum vegna aðhalds lánastofnanna og hækkun vaxta. Þrátt fyrir lækkunina má sjá að síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 20,3 prósent. Birting vísitölunnar á að varpa ljósi á fasteignaverðsþróun samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
Sérbýli lækkar meira en fjölbýli
Vísitala fasteignaverðs á sérbýli lækkar um 1,2 prósent á milli mánaða á meðan lækkun fjölbýlis nemur einungis 0,04 prósent. Þá segir: „Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.“