Katla hefur gefið út sölustöðvun og innköllun af markaði á smákökudeigi sem fyrirtækið framleiddi í samstarfi við Evu Laufey Hermannsdóttur, markaðs- og upplifunarstjóra Hagkaupa. Tvær tegundir af kökudeigi hennar hefur notið mikilla vinsælda og seldist upp hjá Kötlu, alls 25 þúsund deig. Eva Laufey segist miður sín vegna málsins.
Sjá einnig: Eva Laufey miður sín yfir smákökudeiginu: „Aldrei myndi ég vilja koma ólykt inn á heimilin ykkar!“
Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá baðst Eva Laufey velvirðingar á gölluðu súkkulaðibitakökudeigi sem virðist vera í umferð. Það hefur hún gert í fjölmennu samfélagi matgæðinga á Facebook, Matartips!.
„Ég er gjörsamlega miður mín yfir þessu. Þetta eru semsagt súkkulaðibitakökurnar og því miður hafa komið upp nokkur tilfelli. Aldrei á ævi minni myndi ég vilja koma ólykt inn á heimilin ykkar eða bjóða upp á ónýtar kökur eða deig. Þetta er grautfúlt!,“ segir Eva Laufey og heldur áfram:
„Er hægt að gráta yfir kökudeigi? Svarið er já Nú ætla ég hins vegar að hætta því og áfram gakk. Stutt í jólin, allir á fullu og ég vona að þið hafið það öll gott.“