Sósíalistar sem og ýmsir aðrir, eru afar ósáttir við orð Einars Þorsteinssonar, formann borgarráðs og tilvonandi borgarstjóra um starfsemi Vinjar.
Sara nokkur skrifar færslu í hóp Sósíalista á Facebook en hún hlekkjar frétt Fréttablaðsins um gagnrýni á orð Einars. Færsla Söru er harðorð enda kallar hún hana „rant“ eða reiðilestur. Orð Einars féllu í viðtali við Hringbraut en þar sagði hann: „Ég velti því upp, þetta byrjaði sem sjálfboðaliðaverkefni af hálfu Rauða krossins, starfsemin í húsinu er þess eðlis að það þarf ekki endilega fagfólk til þess að sinna því. Ég velti fyrir mér hvort einhverjir af þessum 4.000 sem skrifuðu undir þetta eða Rauði krossinn eða aðrir sem vilja sinna þessum hópi með þessum hætti vilji gera það áfram.“
„Rant. Meirihlutinn í borginni er ekki að gera gott mót þessa dagana og hið kapítalíska niðurrif heldur bara áfram. Einn innviður í einu. Nei, afsakið – allir í einu, smá á hverjum degi,“ svona byrjar póstur Söru.
Og hún heldur áfram:
Og ekki vildu þau frysta launin sín í eitt ár. Nei, það var ótækt. „Lausnin“ er að halda áfram að sverfa að viðkvæmustu hópunum því þau eru hvort er bara einskonar útgjöld sem má kannski bara sleppa? Hver þarf í raun „faglega þjónustu“ sem krefst menntunar og leiðir af sér gæði fyrir fólkið?“
Því næst vitnar Sara í orð Einars:
Spurning hvort það megi ekki líka bara leggja af menntun leikskólakennara – eru þau ekki bara að hugga og snýta allan daginn? Þarf eitthvað endilega fagfólk til að sinna þessu. Eða á hjúkrunarheimilinum – er þetta ekki meira og minna sama sýslið með vesalinga sem þarf ekkert endilega fagfólk til að sinna?“
Í lokaorðum sínum skýtur Sara bylmingsfast í borgarstjórnina í heild: