Marta Jónasdóttir, ritstjóri Smartlands og meðritstjóri Davíðs Oddssonar á Mogganum, er einkar snjöll að fiska upp hjónaskilnaði og aðrar hamfarir í lífi fólks og lyfta þar með lestri Moggans. Nýverið fiskaði hún upp skilnað skemmtikraftsins Ara Eldjárns og eiginkonu hans, Lindu Guðrúnar Karlsdóttur ljósmyndara. Gjarnan er staðlað, klisjukennt niðurlag á skilnaðarfréttum Mörtu Maríu til að réttlæta umfjöllunina. “Smartland óskar þeim góðs gengis í öldugangi lífsins!” eru lokaorðin gjarnan. Þegar tekst að upplýsa um ný ástarsambönd er það gjarnan orðað þannig að „þau hnutu um hvort annað“. Það kemst enginn fjölmiðill með tærnar þar sem drottning slúðursins hefur hælana …